Veljarinn
 

Blókarinn

Blókarinn +

Leitarinn

Myndarinn

Prófílarinn

Safnarinn

Síarinn

Slembiblókarinn

Spurnarinn

Staðreyndarinn

Vitleysingur vikunnar

 

Meðmælarinn

Tengill dagsins í dag:
82 árgangurinn

 

Upplýsingarinn

Enginn á afmæli í dag.
Næsta: Stefán og Gunnar , 27 dagar!

 

Kommentarinn

[Blók] ég fer aftur heim 5 ...

[Blók] Mig minnir að Ýmir v...

[Blók] ég er upptekinn þess...

[Blók] Ég verð ekki að vinn...

[Blók] Hljómar vel, en ég e...

[Blók] Til hamingju með afm...

[Blók] Danni gamli!!

[Blók] Hamms amms Danns

 

Linkarinn

Alien Loves PredatorBaggalúturBíóExtrím RisaeðlaHeyrt í NYHvíta NinjanIMDBWulffmorgenthaler

 

Blókarinn

Atli AAuðurÁrni KristjánssonÁrni MattÁsapjásaÁslaug Forsetibabú bloggarBryndís ErlingsBrynhiDarbó detturEmilErlingur.netfsustelpurnarGervahverfið BitraGummi TorfiHnyttinn TitillHvannEyrúnKarlagatanKristófer skrifar hlutiKuntusafagengiðLaufey MongólítiLeifur V.LesnirMarvinOfur IngaOfurrollurSigga & SteinunnSigrún JSoðnar RollurStjarfir StrandverðirSynetaSölviÖfjörð

 

Barnarinn

Amelía Rán Bjarkadóttir

Ronja Lena Hafsteinsdóttir

 

Víðir sagði:
#5006 / 2008
Víðir
  

Hey Gaurar

Ég kem heim á Íslandið þann 6 desember. Ég lendi seint um kvöldið en geri ráð fyrir því að vera kominn í Rvk fyrir miðnætti. Ég hef ráðgert það að verða orðinn ölvaður þegar ég kem og svo kem ég til með að drekka meira á föðurlandinu.

En ef menn væru til að gera eitthvað helgina á eftir 12-14 djés þá er ég til, hvort sem það verði bara bjór eða jafnvel svona svaka ferð í Laugar og bjór eða síðdegisbjór og keila eða bjór og púl. En já hvernig er það með bústaðarferð ? er svoleiðis planað á milli jól og nýárs ?

17.NÓV
kl. 20:13:33
Björninn sagði:
#5005 / 2008
Björninn
  Hei Dannarinn á afmæli í dag, orðinn tæplega þrítugur.

Til hamingju með það Daníel!

Yðar einlægur,

Björn.
13.NÓV
kl. 16:51:51
Víðir sagði:
#5004 / 2008
Víðir
  Hér sit ég við stofuborðið og ét mig veikan af fylltum lakkrísreimum, nóa kroppi og harðfisk. Ég ætti að vera að læra fremur en að éta nammi og blogga. En ég hef ennþá fram á mánudag að klára þetta stóra verkefni, þannig ég læt það bíða til sunnudags.
Hér á Granavöllum í Sidcup gengur lífið sinn vanagang. Laufin halda áfram að falla niður einsog íslenskur gjaldeyrir. Hér er fólk stungið jafn reglulega og forstjórar bankanna heima stinga undan heilu hrúgunum af seðlum sem brátt verða alveg verðlausir. Hér er sólin byrjuð að sjást minna, en þó ekki alveg horfin einsog trúverðuleiki stjórnvalda á Íslandi.
 
En já ég verð að viðurkenna að ég er með svoldið samviskubit. Við tókum hérna heima, ég og kjéllingarnar mínar tvær, í spil. Við spiluðum eitt spil Monopoly, sem er kannski ekki alveg viðeigandi á þessum tímum. En það sem ég hef samvikubit yfir er sú staðreind að ég rústaði þeim og sýndi einstaka aðlögun að kapítalismanum, ég sem hef nú ekki verið ötull stuðningsmaður hans. Það versta er kannski það að ég naut þess, sérstaklega af því ég var lítilmagninn, þær áttu allar göturnar og fyrirtækin fyrir utan tvær götur í gulu seríunni, þær átti ég.
En nóg af sigrum og yfirtökum hér í Bretlandi.

ég væri til í að heyra hvað er á seyði heima á skeri. og hvort það sé nokkuð óhætt að koma um jólin ?
11.NÓV
kl. 16:11:24
Björninn sagði:
#5003 / 2008
Björninn
  Ég sá frétt um það í dag að starfsfólki Skjás eins hefði verið sagt upp. Fólk talaði um þetta í vinnunni, en viðbrögðin voru svipuð því ef íslenska briddslandsliðið hefði dottið úr keppni í fjórðungsúrslitum á heimsmeistaramótinu í Fjarskanistan. Æ, var það. Jæja.

Á www.skjarinn.is má nú lesa þennan texta hér:

___________

VILTU HAFA ÁFRAM AÐGANG AÐ ÓKEYPIS SJÓNVARPSSTÖÐ Á ÍSLANDI?
Í ljósi samdráttar á auglýsingamarkaði, ójafnrar samkeppni frá RÚV og óvissu um innkaupsverð á sjónvarpsefni frá útlöndum hefur Skjárinn tilkynnt öllum starfsmönnum sínum að þeim verði sagt upp frá og með 1. nóvember.
Vonast er til að uppsagnirnar þurfi ekki að taka gildi en til þess að starfsemi SkjásEins geti haldið áfram þurfa stjórnvöld að taka ákvörðun um að hér ríki eðlilegt samkeppnisumhverfi, sambærilegt við það sem er til staðar á öðrum Norðurlöndum.
Á hverju ári fær RÚV 3.000 milljónir króna í forskot frá okkur skattgreiðendum og getur því notað þann pening til að yfirbjóða aðrar stöðvar við kaup á efni.
Einnig undirbjóða þeir frjálsu stöðvarnar við sölu auglýsinga.
Stjórnendur og starfsmenn munu taka höndum saman á næstu vikum til þess að starfsemin geti haldið áfram, áhorfendum og auglýsendum til heilla.
Áhorf á SkjáEinn er í sögulegu hámarki og við treystum því og trúum að landsmenn allir og stjórnvöld styðji áframhaldandi veru frjálsra fjölmiðla á Íslandi.
Við biðjum þig því að setja nafn þitt á listann og ganga til liðs við okkur svo að SkjárEinn megi lifa sem lengst.

Starfsmenn Skjásins
Ég undirritaður/undirrituð skora á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og ríkisstjórn Íslands að leiðrétta þessa skökku samkeppnisstöðu og tryggja þar með veru frjálsra fjölmiðla á Íslandi.

_________

..og svo er pláss fyrir undirskriftir. Þeir eru líka að keyra á auglýsingum með svipuðu inntaki á skjánum sjálfum, þarsem fólk er hvatt til að fara á skjarinn.is.

Það er tvennt í þessu. Annarsvegar er nokkuð til í því að RÚV ætti ekki að bítast við einkareknu stöðvarnar um auglýsingatekjur, ekki vegna þess að það er ósanngjarnt gagnvart þeim einkareknu heldur vegna þess að skattgreiðendur eru að borga þessar x mörgu milljónir til að halda úti Ríkisútvarpi/sjónvarpi, og ættu ekki að þurfa að sitja undir auglýsingum í ofanálag.

Hinsvegar ættu allar sjónarpsstöðvar, hvort sem þær eru einkareknar eður ei, að bítast um besta sjónvarpsefnið, og það þýðir að þeir sem hafa minni pening milli handanna geta bara sest niður og haldið kjafti á meðan fullorðna fólkið ræðir málin. Það hvernig stjórnendur stöðvanna skilgreina ,,besta sjónvarpsefnið" hlýtur þá að koma inní myndina; það er deginum ljósara að áherslurnar eru gerólíkar hjá RÚV og hjá Skjá einum. En ef tveir vilja sama hlutinn þá ræður krónutalan (eða dollaratalan), það er ekkert hægt að rífast um það.

Það er bara svo neyðarlega mikil frjálshyggjubræla af þessu orðalagi að mann svimar:

,,Á hverju ári fær RÚV 3.000 milljónir króna í forskot frá okkur skattgreiðendum og getur því notað þann pening til að yfirbjóða aðrar stöðvar við kaup á efni."

Hvaða skattgreiðendur ertu að tala um? Fyrirtækin, einkareknu sjónvarpsstöðvarnar sem borga jú væntanlega einhverja skatta af sínum auglýsingatekjum, eða Íslendinga, venjulegt fólk sem greiðir sína skatta og horfir á sjónvarp?

Í rauninni kemur það niður á sama stað: Skattgreiðendur, sama hverjir þeir eru, eru ekki að borga einhverju fyrirtæki útí bæ til þess að það geti farið illa með þá. Þeir eru að borga skatta til að geta lifað í siðmenntuðu þjóðfélagi, og hluti af því er að halda úti (tiltölulega) óháðu ríkissjónvarpi. Sjónvarpsstöð sem þarf ekki að reiða sig á endalausar auglýsingatekjur og auglýsingahlé á sjö mínútna fresti, sjónvarpsstöð sem þarf ekki að biðja um fjárframlög eða undirskriftir á lista þegar harðnar í ári, sjónvarpsstöð sem þarf ekki að skila hagnaði.

Ég skal skrifa undir það að RÚV mætti slappa aðeins af í auglýsingageiranum og gera betur úr því fé sem það hefur. En ef þú ætlar að reyna að segja mér að fyrirtækið okkar, sem við rekum og við höldum gangandi, sé að fara illa með okkur þegar það kaupir efni sem okkur langar að horfa á, þá ert þú fífl og hálfviti. Hver sem þú ert.

Vil ég hafa áframhaldandi aðgang að ókeypis sjónvarpsstöð hér á landi? Já og nei.

Ef þú átt við sjónvarpsstöð sem metnað og þor í íslenskri dagskrárgerð, og innkaupum á erlendu efni, í staðinn fyrir að drekka endalaust sama skólpið úr rennum bandarískra auglýsingastöðva og spýta því síðan á skjáinn minn? Já takk.

En ef þú átt við sjónvarpsstöð sem leggur meira uppúr því að vera í gangi allan daginn alla daga heldur en að leggja út fyrir einhverju sem mann langar í alvörunni til að sjá; sem sýnir auglýsingar til að geta haldist í loftinu til að geta sýnt auglýsingar til að geta haldist í loftinu til að geta sýnt auglýsingar..? Nei takk.

Það má vera að Skjár einn hafi nýslegið einhver áhorfendamet, mér dettur þá helst í hug að það séu allir þessir glænýju atvinnuleysingjar, þeir sem sitja fastir yfir sjónvarpinu á meðan ekkert er í gangi. Ég gleðst síður en svo yfir því að nokkur maður eða kona skuli missa vinnuna þegar Skjár einn kveður, en þau eru samt sem áður dropi í hafið. Og fyrir mitt leyti segi ég vertu bless Skjár einn. Þú varst stöðin sem hægt var að skipta á þegar ekkert var að gerast á RÚV, en veistu ég finn mér eitthvað annað að gera.

-b.
30.OKT
kl. 22:20:01
Víðir sagði:
#5002 / 2008
Víðir
  Hann BjönnNar á emmilli.
hann BjönnNar á emmilli
hann BjönnNar á eimmelli
Hann á eimmillli í dag

Til Hamingju með dagarann, Björn Unnar og farðu nú að haga þér eftir aldri,

Bæbæ
Víðir
27.OKT
kl. 12:01:45
Hafsteinn sagði:
#5001 / 2008
Hafsteinn
  

Vitleysinga Badmintonmót - 18 Október 2008

Við byrjuðum daginn á hollum skyndibita, Pylsa og kók. Fórum svo í Gnoðavoginn þar sem TBR er með aðstöðu. Við borguðum völlinn, leigðum spaða og skitpum um föt. Það var ekkert eftir nema að byrja mótið.

Fyrsti leikur var ég og Már á móti Helga og Hlyn og að sjálfsögðu unnu ég og Már og vorum við því fullvissir að við myndum vinna restina af leikjunum. En það fór því miður ekki svo og hverjum er um að kenna er ekki en komið í ljós.

Við náðum að landa einum sigri þennan dag líkt og Egill og Co.

Gunnar og Bjössi voru með 2. sigra. Þeir unnu mig og Má 13-12 í æsispennandi leik og Egil og Co 16-9.

Helgi og Hlynur Töppuðu einungis einum leik og var það á móti hverjum öðrum en mér og Má. Þeir unnu Egil 14-10, Davíð og Stefán 15-10 og Gunnar og Bjössa 15-9. Meðað við þetta voru þeir með unnið mót. Þeir skoruðu flest stig (56), fengu á sig fæst stig (45) Þannig að þeir unnu mótið ekki satt?

Nei það var ekki svo. Það er eitt lið sem á eftir að nefna; Það eru þeir Davíð og Stefán. Þeir unnu alla sína leiki nema á móti Helga og Hlyn. Og þar sem tvö lið voru með tvo sigra var ekkert annað í stöðunni en að spila úrslita leik, eða hvað? Jú, jú við gerðum það og hvað gerðist? Það lið sem var búið að ráða lögum og lofum á vellinum allt mótið, nema í opnunarleiknum, Helgi og Hlynur gáfu frá sér fyrsta sætið í minnst spennandi leik mótsins. Ég man ekki eftir neinu spennandi úr leiknum nema náttúrulega þegar að boltinn var inni, eða var hann úti, ég man það ekki. Eina sem ég man að það var mikið öskrað en það var ekki maður í öðru hvoru liðinu sem öskraði hæst heldur var það Gunnar, Why?

Hvernig endaði úrslitaleikurinn? Hver var lokastaðan?

Takk fyrir góðan dag strákar, þetta var alveg til fyrirmyndar!

20.OKT
kl. 06:54:30
Björninn sagði:
#5000 / 2008
Björninn
  Jei, ég er bestur!

-b.
16.OKT
kl. 16:37:58
Björninn sagði:
#4999 / 2008
Björninn
  Einn tveir og..
kl. 16:37:46
Hafsteinn sagði:
#4998 / 2008
Hafsteinn
  

Dagskrá Laugardaginn 18 Október

 

Hittumst í Brunch og skiptum í lið fyrir Badminton kl. 13.00 í World Class Laugum.

Löbbum yfir í Gnoðavoginn, ca. 5min labb, og spilumBadminton frá kl. 14.10 - 15.50

Við erum með einn völl í 2x50min og kostar það 5000kr. Leiga á spöðum kostar 100kr spaðinn.

1. Verðlaun er Boðsmiði í Baðstofuna í boði mín.

Skokkum yfir í Laugar og rífum aðeins í lóðin

Förum svo niður í Baðstofuna Það er 2000 kr fyrir manninn. Liðið sem vinnur Badmintonið fær Ókeypis í Baðstofuna

(Ókeypis í sund og Ræktina fyrir alla sem borga sig inn í Baðstofuna)

Framhaldið er í ykkar höndum!

Kostnaður á manninn:

Badminton meðað við að 10 manns mæta = 500kr völlurinn, 100kr spaði og fluga = 600kr.

Baðstofan = 2000kr inn, bjórinn og snarlið fer eftir græðgi hvers og eins. Ég mæli með að lauma nokkrum bjórum með í töskunni.

Niðurstaða = ca. 3000 kr. fyrir dag af skemmtun

Kv. Hafsteinn

14.OKT
kl. 17:29:26
Hafsteinn sagði:
#4997 / 2008
Hafsteinn
  

Mamma er að vinna á Vitabar þessa helgi, við gætum fengið hjá henni!

Ca. 1800 kr á manninn í  Væri gaman að chilla þar.

Gætum rifið í  á undan

og endað á því að fá okkur .

Kommentið!

 

13.OKT
kl. 07:43:12